Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
Vélin sem notuð er í flugið, KingAir Beechcraft 200. Mynd/aðsend.

Innviðaráðuneytið hefur samþykkt beiðni Vestmannaeyjabæjar um að framlengja ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja fram til mánaðarmóta. Frá þessu er greint á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.

Í framhaldinu mun Vegagerðin hafa samband við flugfélagið Norlandair um áframhaldandi flug samkvæmt óbreyttu fyrirkomulagi, en gert er ráð fyrir tveimur ferðum á dag áfram.

Ástæða framlengingarinnar er sú að Landeyjahöfn hefur enn ekki opnað fyrir fulla ferjuáætlun og því talið nauðsynlegt að halda fluginu áfram um sinn. Í frétt Vestmannaeyjabæjar kemur fram að með ákvörðuninni verði áfram tryggður aðgangur íbúa, fyrirtækja og annarra að öruggu og reglubundnu flugi til og frá Eyjum.

Nýjustu fréttir

Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.