Vertu með okkur í matarævintýri á Næs á MATEY sjávarréttahátíðinni, þar sem Vilhjálmur Sigurðarson leiðir gesti í gegnum einstaka matarupplifun byggða á íslensku hráefni, árstíðatengingu og djúpri virðingu fyrir bragði og uppruna.
Seðill Vilhjálms einkennist af einfaldleika og nákvæmni þar sem hvert hráefni fær að njóta sín. Máltíðin hefst m.a. á reyktum þorskhrognum með sellerírót og reyktum lauk, réttur sem setur tóninn með mildum reyktum keim og jarðbundinni dýpt.
Í framhaldinu kemur hægeldaður karfi með hollandaise-sósu, ætihvönn og sólskins tómötum, þar sem ferskleiki og fíngerð bragðlög spila saman. Lax frá Eyjum, gljáður með fíflahunangi, er borinn fram með jógúrt, gerjaðri gulrótarsósu og súrum radísum, réttur sem sameinar sætleika, sýru og ferskleika á fágaðan hátt.
Grillaður skötuselur er einn af hápunktum seðilsins, borinn fram með mysu- og rótarsoði, karamelliseruðu eggaldini, shiitake-seyði og heimagerðu svartlauksdufti þar sem djúp og umami-rík upplifun sem sýnir styrk og nákvæmni í eldhúsinu.
Að lokum er eftirréttur úr steinseljurót með hunangi og sítrónuverbenu sem lokar máltíðinni á léttan og ilmsterkan hátt.
Seðillinn endurspeglar vel hugmyndafræði Vilhjálms, að skapa rétti sem eru einlægir, árstíðabundnir og byggðir á sterkri tengingu við hráefnið. Á Næs fá gestir á MATEY að upplifa matargerð í hæsta gæðaflokki þar sem einfaldleiki og sköpunargleði mætast á disknum.
Hátíðin sem er samstarfsverkefni Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, Visit Vestmannaeyjar, Ísfélags., Vinnslustöðvarinnar hf, Laxey og Fab Lab Vestmannaeyjar verður haldin dagana 22.-23.maí næstkomandi.
Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á lax frá landeldinu Laxey. Tanginn og Kráin bjóða upp á sérrétti í tilefni hátíðarinnar og Brothers Brewery kynnir sérlagaðan MATEY-bjór.