Lögreglan á Suðurlandi segir stöðu rannsóknar á andláti á Hraunbúðum í lok janúar vera óbreytta að svo stöddu. Beðið sé eftir frekari gögnum áður en hægt verði að taka næstu skref í málinu.
Þetta kemur fram í svari Rúnars Þórs Steingrímssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi, við fyrirspurn Eyjafrétta.
„Við höfum engar aðrar fréttir af málinu en komið hafa fram í fréttatilkynningum sem við höfum þegar gefið út,“ segir í svari lögreglu. Þar kemur jafnframt fram að lögregla bíði eftir gögnum til að geta haldið rannsókninni áfram. „Þangað til er málið í óbreyttri stöðu hjá lögreglu,“ segir í svari embættisins.
Eyjafréttir greindu áður frá því að Landsréttur hefði staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að hafna kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn málsins.