Vel heppnað söngkvöld og aðalfundur
Frá Á.t.V.R. – Átthagafélagi Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu (og reyndar landinu öllu)
Nýja stjórnin. Dögg Lára Sigurgeirsdóttir, Hjördís Jóhannesdóttir, Petra Fanney Bragadóttir, Rúnar Ingi Guðjónsson og Svala Helga Sigurðardóttir. Ljósmyndir/Ófeigur Lýðsson

Aðsend grein

Rúnar Ingi Guðjónsson 

Aðalfundur Á.t.V.R. var haldinn í gærkvöldi, 28. maí, í sal Kiwanis-félagsins Eldeyjar í Kópavogi og hófst með stuttum en skemmtilegum fundarstörfum, þar sem hefðbundin aðalfundarmál voru tekin fyrir.

Á fundinum var ný stjórn félagsins kjörin. Í stjórn Á.t.V.R. sitja nú: Rúnar Ingi Guðjónsson, Petra Fanney Bragadóttir, Hjördís Jóhannesdóttir, Dögg Lára Sigurgeirsdóttir og Svala Helga Sigurðardóttir.

Svala Helga kemur inn í stjórn í stað Ófeigs Lýðssonar, sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Félagið þakkar Ófeigi fyrir framlag hans til starfa félagsins.

Að loknum aðalfundi tók við einstaklega vel heppnað söngkvöld sem Jarl Sigurgeirsson stýrði af sinni alkunnu snilld. Sungið og spilað var fram eftir kvöldi í sannkölluðum Eyjastíl, við afar góðar undirtektir gesta. Eyjalögin reyndust þar sem áður ómetanlegur menningararfur sem sameinar Eyjamenn í söng og gleði, hvar sem þeir eru staddir í heiminum.

Ragnar Sigurjónsson kynnti jafnframt áhugavert verkefni sitt og sýndi myndir af Vestmannaeyingum prentaðar út í raunstærð. Um er að ræða bráðskemmtilega og lifandi nálgun á mannlífið í Eyjum. Ragnar vinnur nú að undirbúningi sýningar og leitar að hentugu sýningarrými í Vestmannaeyjum fyrir þetta spennandi verkefni.

Starfsemi félagsins á nýhöfnu starfsári verður með hefðbundnum hætti. Meðal fyrirhugaðra viðburða eru:

  • Aðventukvöld, þar sem listamenn frá Vestmannaeyjum koma fram
  • Goskaffið í kringum 23. janúar, með áhugaverðum erindum og spjalli um lífið í Eyjum, með sérstakri áherslu á gostímabilið

 

Ný stjórn mun kynna vetrarstarfið nánar í lok sumars.

Á.t.V.R. hlakkar til að halda áfram að efla tengsl Vestmannaeyinga og vina þeirra um land allt með fjölbreyttu og skemmtilegu starfi á komandi misserum.

 

Fyrir hönd stjórna Á.t.V.R.

Rúnar Ingi Guðjónsson

Nýjustu fréttir

Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár
Vel heppnað söngkvöld og aðalfundur
Lögregla bíður gagna áður en næstu skref verða tekin í andlátsmáli
Heimir og lærisveinar unnu Katar í vináttulandsleik
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.