Eldri ökumenn þurfa framvegis ekki að leggja fram læknisvottorð við endurnýjun ökuskírteinis fyrr en þeir hafa náð 75 ára aldri. Þetta er meðal breytinga á reglugerð um ökuskírteini sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið.
Fram að þessu hefur almennt verið krafist læknisvottorðs við endurnýjun ökuskírteina frá 65 ára aldri, en með breytingunni hækkar aldursmarkið um tíu ár.
Samkvæmt ráðuneytunum er markmiðið að einfalda umsóknarferlið og laga reglurnar að breyttum aðstæðum. Bent er á að heilsa fólks hafi almennt batnað samhliða hækkandi lífaldri og að reynslan sýni að læknisvottorð hafi nær undantekningalaust verið veitt við endurnýjun ökuskírteina hjá þessum aldurshópi.
Talið er að breytingin muni draga úr álagi á bæði eldri ökumenn og heilbrigðiskerfið, auk þess sem hún fækki óþarfa vottorðaskrifum hjá heimilislæknum.
Þrátt fyrir breytinguna minna stjórnvöld á að áfram gildi meginregla umferðarlaga um að ökumenn skuli á hverjum tíma vera líkamlega og andlega færir um að stjórna ökutæki, óháð aldri.
Fleiri breytingar eru einnig gerðar á reglugerðinni. Þar má meðal annars nefna að umsækjendur um ökuskírteini fá nú allt að tólf mánuði til að ljúka verklegu prófi eftir að hafa staðist bóklegt próf. Áður var sá frestur almennt sex mánuðir.
Jafnframt er nú kveðið á um fimm ára gildistíma starfsleyfa ökuskóla.
Í reglugerðarbreytingunni er einnig skýrar kveðið á um að atvinnubílstjórar skuli ljúka endurmenntun fyrir hverja endurnýjun ökuréttinda. Gildistími endurmenntunar verður skráður í ökuskírteini og fylgir gildistíma þess, sem getur verið allt að fimm ár.
Þá hefur verið felld niður krafa um sérstakan búnað í sjálfskiptum kennslubifreiðum sem ætlað var að gera ökukennurum kleift að rjúfa aflrás. Samkvæmt Samgöngustofu hefur þessari kröfu ekki verið framfylgt og kennslubifreiðar almennt ekki búnar slíkum búnaði.
Tillögur að breytingunum voru kynntar í samráðsgátt stjórnvalda í vetur áður en þær tóku gildi.