45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Útskriftarnemar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum ásamt Helgu Kristínu Kolbeins skólameistara og Thelmu B. Gísladóttur aðstoðarskólameistara að lokinni hátíðlegri útskriftarathöfn í dag. Alls útskrifuðust 45 nemendur frá skólanum. Ljósmynd/Bjarni Sigurðsson

Skólaslit vorannar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum fóru fram í dag, föstudaginn 29. maí, þar sem 45 nemendur voru útskrifaðir af sex mismunandi brautum. Athöfnin hófst klukkan 13.00 og fór fram að viðstöddum útskriftarnemum, fjölskyldum, starfsfólki skólans og öðrum gestum.

Nemendur útskrifuðust af stúdentsbrautum, húsasmiðabraut, sjúkraliðabraut, iðnmeistaranámi, starfsbraut og viðbótarnámi til stúdentsprófs. Í ræðu skólameistara kom fram að útskriftin væri ekki aðeins staðfesting á loknum áföngum og prófum, heldur einnig á þrautseigju nemenda.

Í yfirliti yfir vorönnina kom fram að önnin hefði verið viðburðarík. Meðal þess sem bar hæst var heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í skólann, góður árangur nemenda í nýsköpun, myndlistarsýning nemenda og öflugt félagslíf. Þá var sérstaklega nefnt að skólinn væri orðinn þétt setinn og að mikill áhugi væri á námi við FÍV.

Nokkrir nemendur hlutu viðurkenningar við athöfnina. Hrafnhildur Hallgrímsdóttir hlaut meðal annars Menntaverðlaun Háskóla Íslands, Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík og viðurkenningu skólans fyrir mjög góðan heildarárangur í námi, 9,0. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Erna Sólveig Davíðsdóttir hlutu einnig viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur, báðar með 8,6.

Skólameistari minnti útskriftarnema á mikilvægi þess að taka þátt í samfélaginu, hlusta, spyrja góðra spurninga og sjá fólkið í kringum sig. Þá kom fram að útskriftarárgangurinn frá 1986, sem nú fagnar 40 árum frá útskrift, hefði sent útskriftarnemendum dagsins hlýjar kveðjur.

Að lokinni athöfn var stillt upp til myndatöku.

Útskriftarnemar vorið 2026

Eftirtaldir nemendur voru útskrifaðir frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við skólaslit vorannar 2026:

Stúdentsbraut – náttúruvísindalína

  • Ásdís Halla Hjarðar
  • Birna Dís Sigurðardóttir
  • Birna María Unnarsdóttir
  • Erna Sólveig Davíðsdóttir
  • Guðjón Emil Ómarsson
  • Hrafnhildur Hallgrímsdóttir
  • Lordiar Emefa Akosua Adzaho
  • Ólafur Már Haraldsson

Stúdentsbraut – félagsvísindalína

  • Alexandra Ósk Viktorsdóttir
  • Emilíana Erla Ágústsdóttir
  • Eva Magnúsdóttir
  • Rebekka Rut Rúnarsdóttir

Stúdentsbraut – opin lína

  • Alexander Örn Friðriksson
  • Elís Þór Aðalsteinsson
  • Selma Rós Buelow Rafnsdóttir
  • Viggó Valgeirsson
  • Þorgerður Katrín Adolfsdóttir

Sjúkraliðabraut

  • Inga Lára Pétursdóttir
  • María S. Sigurbjörnsdóttir

Húsasmiðabraut

  • Ailandas Baurinas
  • Aron Stefánsson
  • Ágúst Sævar Einarsson
  • Birgir Nielsen Þórsson
  • Óskar Elías Sigurðsson

Iðnmeistaranám

  • Ailandas Baurinas
  • Anton Már Óðinsson
  • Garðar Heiðar Eyjólfsson
  • Guðmundur Jón Magnússon
  • Jón Helgi Sveinsson

Ekki viðstaddir athöfn

  • Andri Kristinsson – Iðnmeistaranám
  • Anna Fríða Káradóttir – Starfsbraut
  • Ágúst Guðmann Úlfarsson – Iðnmeistaranám
  • Claes Olov Engelbrektsson – Húsasmiðabraut
  • Dovidas Norkus – Húsasmiðabraut
  • Elís Eduardo Magnason – Iðnmeistaranám
  • Felix Örn Friðriksson – Húsasmiðabraut
  • Gabríel Þór Vestmann Gunnarsson – Iðnmeistaranám
  • Gauti Þorvarðarson – Iðnmeistaranám
  • Gunnar Rafn Ágústsson – Húsasmiðabraut og iðnmeistaranám
  • Gunnar Þór Guðjónsson – Iðnmeistaranám
  • Jökull Orri Gylfason – Viðbótarnám til stúdentsprófs
  • Konstantinas Zapivalovas – Húsasmiðabraut
  • Rebekka Svava Sigurjónsdóttir – Húsasmiðabraut
  • Sindri Georgsson – Iðnmeistaranám
  • Valur Smári Heimisson – Húsasmiðabraut
  • Þórhallur Orri Steinsson – Iðnmeistaranám
Ljósmynd/Bjarni Sigurðsson

Nýjustu fréttir

45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.