Síldarlóðningar frá hafnargarðinum og hálfa leið út að Bjarnarey

Feðgarnir Bragi og Sigurður notuðu blíðuna seinnipartinn í gær sjósettu Þrasa VE en bátinn hafa þeir alla jafna inni yfir há veturinn. Bragi segist hafa verið að fylgjast með hval og súlukasti fyrir vestan Eyjar og augljóst að mikið líf sé í sjónum eins og oft er á þessum árstíma. “Við tókum smá prufutúr eftir að við sjósettum og það lóðaði bullandi síld alveg frá hafnargarðinum og alveg þar til við snérum við en þá vorum við komnir hálfa leið út í Bjarnarey,” sagði Bragi Steingrímsson.

Bragi vonast til að það gefi eitthvað veður á næstu dögum svo hægt sé að komast á fiskirí. “Nú fer daginn að lengja og þá fer þetta að verða aftur skemmtilegt,” sagði hinn síungi Bragi Steingríms að lokum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.