Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu - uppfært
Héraðsdómur Suðurlands féllst ekki á að Vinnslustöðin teldist útgerðarmaður skipsins og viðurkenndi jafnframt heimild Hugins og VÍS til að takmarka ábyrgð sína
Huginn VE siglir inn Vestmannaeyjahöfn.

Héraðsdómur Suðurlands kvað í dag upp dóm í skaðabótamáli sem Vestmannaeyjabær og Ljósleiðarinn höfðuðu vegna skemmda á neysluvatnslögninni NSL-3 og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn eftir að akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 festist í lögnunum í nóvember 2023. Dómurinn sýknaði Vinnslustöðina hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. af kröfum stefnenda.

Jafnframt var viðurkennt að Huginn ehf. og VÍS tryggingum hf. væri heimilt að takmarka ábyrgð sína samkvæmt ákvæðum siglingalaga. Þá féllst dómurinn ekki á að Vinnslustöðin hf. teldist útgerðarmaður skipsins. Málskostnaður var felldur niður.

Málið á rætur að rekja til 17. nóvember 2023 þegar stjórnborðsakkeri Hugins VE 55 rann út án þess að áhöfnin yrði þess vör á leið skipsins til hafnar. Akkerið dróst eftir hafsbotninum, festist í neysluvatnslögninni NSL-3 og ljósleiðara milli lands og Vestmannaeyja og olli umfangsmiklum skemmdum á báðum lögnum.

Vestmannaeyjabær höfðaði málið vegna tjóns á vatnslögninni en Ljósleiðarinn vegna skemmda á ljósleiðaranum. Í málinu var meðal annars deilt um bótaábyrgð stefndu, hvort Vinnslustöðin bæri ábyrgð sem útgerðarmaður skipsins og hvort Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. gætu takmarkað ábyrgð sína samkvæmt siglingalögum.

Í yfirlýsingu frá útgerð Hugins VE 55 kemur fram að félagið telji dóminn mikilvægt skref í úrlausn málsins. Jafnframt sé um að ræða flókið og fordæmisgefandi mál og að líklegt sé að því verði áfrýjað. Af þeim sökum tjái útgerðin sig ekki efnislega um niðurstöðu dómsins að svo stöddu.

Eyjafréttir munu fjalla nánar um málið á næstu dögum.

Fréttin var uppfærð kl. 14.30.

Nýjustu fréttir

Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Alfreð Týr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.