Erna Sólveig - Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Erna Sólveig Davíðsdóttir á útskriftardaginn.

Erna Sólveig Davíðsdóttir útskrifaðist úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og Afreksakademíu ÍBV í lok síðasta mánaðar. Erna var á náttúrufræðibraut og fékk hún viðurkenningu fyrir góðan heildarárangur í námi, með 8,6. Hún stundaði knattspyrnu meðfram námi sínu í FÍV og var hluti af átta manna hóp sem útskrifaðist einnig úr Afreksakademíu ÍBV. Að sögn Ernu fannst henni gott að fá fleiri æfingar í akademíunni sem einblíndu á tækni og svo fannst henni einnig mjög gaman að kynnast krökkunum sem voru hluti af akademíunni. 

Aðspurð að því hvað hafi staðið upp úr frá tíma hennar í FÍV segir hún, ,,Klárlega félagslífið. Mér finnst skemmtilegt að búa í litlu samfélagi, þá kynnist maður öllum mun betur en annars staðar. Einnig fannst mér mjög skemmtilegt þegar handbolta- og fótboltaakademían sameinuðust. Þá æfðum við saman á morgnana og fórum til dæmis oft í blak saman.”

Það getur verið krefjandi að vera í fullu námi og stunda íþróttir af krafti en með góðu skipulagi verða hlutirnir auðveldari. Erna segir að sér hafi gengið vel að samræma æfingar og námið. Hún reyndi alltaf að skipuleggja sig vel og klára öll verkefni tímanlega. Einnig nýtti hún oft ferðalögin í keppnisferðum og helgarnar í að læra. 

Hver var stærsta áskorunin sem þú stóðst frammi fyrir á þessum tíma? ,,Ég man sérstaklega vel eftir seinustu vikunum fyrir jólin 2024, á öðru ári. Þá vorum við stelpurnar í mörgum krefjandi áföngum og það voru mörg próf á fáum dögum. Þá fannst mér sérstaklega erfitt að finna nægan tíma til að læra fyrir hvert og eitt próf.” Þá segir hún jafnframt að sumir áfangarnir voru erfiðari en hún hafi gert ráð fyrir, eins og til dæmis eðlisfræðin. 

Það eru spennandi tímar framundan hjá Ernu en hún segist ætla að taka sér pásu frá námi og vinna næstkomandi vetur. ,,Ég fer síðan til Tanzaníu í október í safaríferð og mun búa í tvo mánuði á eyju sem heitir Zanzibar. Þar ætla ég að taka þátt í hjálparstarfi ásamt frænku minni.”

Hún stefnir svo á frekarar nám haustið 2027 og þá helst til Svíþjóðar þar sem hún bjó þegar hún var yngri. ,,Mig hefur alltaf langað að vinna innan heilbrigðiskerfisins og þá sérstaklega sem sjúkraþjálfari.”

Að lokum segir Erna að það sem hún muni helst sakna frá tíma sínum í FÍV sé að geta hitt vini sína og vinkonur daglega.

Nýjustu fréttir

Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.