Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Lögðust til sunds frá Eyjum klukkan 11.00 í morgun
Aron Þór og Jóhann lögðu af stað á leið til lands í morgun.

Vegna breytinga á veðri hefur Eyjasundinu hjá Aroni Þór og Jóhanni verið flýtt og lögðu þeir af stað frá Eiðinu í Vestmannaeyjum klukkan 11:00 í morgun,  sunnudaginn 5. júlí. Sundið er hluti af söfnunarátaki til styrktar dóttur Bríetar Irmu og hvetja þeir alla sem geta til að leggja málefninu lið á vefsíðunni www.atalia.is.

Áhugasamir geta fylgst með ferð þeirra á Instagram-síðum þeirra, @aronthorleifss og @jgudmundss, þar sem reglulega verða birtar upplýsingar frá sundinu. Jafnframt hefur verið settur upp GPS-rekjarbúnaður sem gerir fólki kleift að fylgjast með ferðum þeirra í rauntíma frá því að þeir hefja sundið.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.