Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Liðsmynd af ÍBV 1 á N1 mótinu.

Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri dagana 1. – 4. júlí. Mótið í ár var sögulegt í mótssögunni því þetta var í fertugasta sinn sem mótið fór fram. N1 mótið er eitt stærsta knattspyrnumót landsins fyrir 5. flokk drengja en í ár voru 2000 þátttakendur frá 41 félagi víðsvegar um landið sem mynduðu alls 200 lið.

ÍBV sendi fjögur lið til leiks, alls 37 iðkendur, ásamt þjálfurunum Andra Ólafssyni, Guðmundi Tómasi Sigfússyni og Kjartani Frey Stefánssyni.

Á miðvikudeginum var leikin svokölluð forkeppni þar sem liðunum var raðað í deildir út frá árangri. Úrslitin á mótinu voru upp og niður en ÍBV strákarnir stóðu sig vel, skemmtu sér konunglega og komu heim reynslunni ríkari með fullt af minningum.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.