Skemmtiferðaskipið Volendam frá Holland America Line lá við akkeri rétt utan við innsiglinguna til Vestmannaeyja í morgun áður en það tók stefnuna inn til hafnar. Skipið er á hringferð um Ísland, Grænland og Kanada og var á áætlun í Vestmannaeyjum í dag.
Ljósmyndari Eyjafrétta, Óskar Pétur Friðriksson, var á ferðinni og myndaði skipið þar sem það lá við akkeri utan við innsiglinguna. Á myndasyrpunni sést vel hversu stórt skipið er þegar farþegabátar og ferjur sigla fram hjá því á leið til og frá höfninni. Þar má meðal annars sjá Herjólf, Baldur og Teistuna, auk lítilla báta Volendam sem fluttu farþega milli skipsins og lands. Að auki liggur annað stórt skemmtiferðaskip í Klettsvík. Það er Viking Mars. Skipið var smíðað árið 2022, tekur 930 farþega og siglir undir norskum fána og er 47.800 brúttótonn að stærð, 228 metrar á lengd.
Volendam er hins vegar 237 metra langt og tekur allt að 1.432 farþega auk um 600 manna áhafnar. Skipið var smíðað árið 1999 og hefur um árabil verið reglulegur gestur í íslenskum höfnum yfir sumartímann.