Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Fjarlækningar hafa hafið samstarf um nýja stafræna læknisþjónustu. Um er að ræða tilraunaverkefni sem verður fyrst um sinn eingöngu í boði fyrir skjólstæðinga HSU í Vestmannaeyjum.
Markmið verkefnisins er að einfalda afgreiðslu algengra og afmarkaðra erinda, stytta biðtíma og skapa heilsugæslunni meira svigrúm til að sinna flóknari verkefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSU.
Þjónustan er ætluð einstaklingum 18 ára og eldri. Skjólstæðingar geta sent inn erindi í gegnum heimasíðu HSU og þaðan verður þeim beint í örugga sjúklingagátt Fjarlækninga. Gert er ráð fyrir að svar frá lækni berist innan tveggja klukkustunda á opnunartíma, en þjónustan verður opin alla daga frá klukkan 10 til 22.
Í fyrstu verður hægt að leysa úr ýmsum algengum erindum sem ekki krefjast þess að sjúklingur komi á heilsugæslustöð. Spurningalistar leiða notandann í gegnum markvissar spurningar með svipuðum hætti og gert er í hefðbundnu læknisviðtali.
Ef svör gefa til kynna alvarleg einkenni verður viðkomandi þegar í stað vísað í viðeigandi úrræði innan heilbrigðiskerfisins.
Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, segir verkefnið mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og eflingu heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi.
„Eitt af okkar lykilhlutverkum er að tryggja sem jafnast aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Fyrir íbúa á Suðurlandi skiptir miklu máli að nýta þær leiðir sem geta fært þjónustuna nær fólki, dregið úr töfum og aukið sveigjanleika í þjónustunni,“ segir Díana.
Hún segir sérstaklega ánægjulegt að verkefnið skuli hefjast í Vestmannaeyjum. HSU bindi vonir við að það reynist skjólstæðingum þar verðmætt og veiti stofnuninni mikilvæga innsýn í frekari þróun þjónustunnar.
Fjarlækningar hafa undanfarin ár þróað fjarheilbrigðisþjónustu og stafræna lausn fyrir fjarlækningar á Íslandi. Að þróuninni hafa komið Victor Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Guðbjartur Ólafsson, sérfræðingur í heimilislækningum, og Mads Aanesen læknir.
Guðbjartur segir markmiðið ekki vera að koma í stað hefðbundinnar heilsugæslu heldur að nýta tæknina þar sem hún henti best.
„Þjónustan er ætluð afmörkuðum erindum og hentar því ekki öllum vandamálum, en með því að leysa einföld og afmörkuð erindi á öruggan hátt getum við bætt aðgengi að læknisþjónustu og um leið skapað meira svigrúm fyrir heilsugæsluna til að sinna þeim sem þurfa á umfangsmeiri þjónustu að halda,“ segir Guðbjartur.
Victor segir hugmyndina hafa kviknað þegar hann starfaði á heilsugæslu. Þar hafi sömu tegundir erinda komið upp aftur og aftur sem oft hafi verið hægt að leysa án þess að sjúklingurinn mætti í skoðun.
Hann hefur búið í Vestmannaeyjum síðastliðið ár og segist hafa séð af eigin raun hversu mikilvægt sé að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Vonir standi til að verkefnið í Eyjum verði fyrsta skrefið í átt að bættu aðgengi að læknisþjónustu um allt land.