
Strandveiðum lauk í gær, 12. ágúst, er almenn ánægja hjá strandveiðisjómönnum með það að tímabilið hafi verið ca. mánuði lengra heldur en síðustu ár.
Mér telst til að 15 bátar hafi farið á strandveiðar frá Vestmannaeyjum, eitthvað var um að aðkomubátar komu hingað um mitt sumar og sömuleiðis fór einn bátur héðan og réri frá Hornafirði seinni hluta tímabilsins.
Heildarafli hjá þessum 15 eyjabátum, sem réru reyndar mjög mis mikið, var liðlega 161 tonn af þorski fyrir um tæplega 114 milljónir, tæplega 68 tonn af ufsa og eitthvað á tíunda tonnið af öðrum tegundum, en heildar veiðin var 238 tonn og 638 kg, meðalverð liðlega 508 krónur og heildar aflaverðmætið því 139.507.761 kr, en aflaverðmætið er tæplega 50 milljónum meira heldur en fyrir 2025.
Vinnslustöðin keypti töluvert af stærri fiskinum hjá strandveiðsjómönnum hér í Eyjum, enda um eðal hráefni í þeirra vinnslu að ræða og bara gaman að því að strandveiðifiskurinn skili líka störfum í frystihúsin hér í Eyjum.
Mardís VE var aflahæst hjá okkur með vel yfir 20 tonn af þorski og aflaði einnig vel í öðrum tegundum, einnig gekk mjög vel hjá Lubbu VE.
Meðal aldur trillusjómanna okkar í Eyjum er yfir 60, þar af 2 sem eru komnir yfir 80, en sérstaklega ánægjulegt er að sjá yngri menn koma inn í þetta.
Almenn ánægja er meðal strandveiðisjómanna allt í kring um landið og ber að þakka núverandi ríkisstjórnar meirihluta fyrir það. Þeir sem gátu róið þá daga sem mátti róa nú í ágúst hafa því átt möguleika á því, ásamt því að nýta sér 12 daga á mánuði hina mánuðina, getað náð 42 róðrum og vantar því aðeins 6 daga upp á loforðið upp á 48 veiðidaga á 4 mánuðum. Vonandi tekst það næst.
Georg Eiður Arnarson