Vestmannaeyjahlaupið verður haldið næstkomandi laugardag í Vestmannaeyjum. Boðið verður upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km, og hefjast bæði hlaupin klukkan 12:30. Rásmark verður við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Keppnisgögn verða afhent í Íþróttamiðstöðinni föstudaginn 4. september klukkan 17:00–19:00. Þeir sem koma til Vestmannaeyja samdægurs geta sótt keppnisgögn sín á laugardeginum frá klukkan 11:00 til 12:30.
Þátttökugjald er 2.000 krónur, óháð vegalengd. Hlauparar sem eru 15 ára og yngri, fæddir árið 2009 eða síðar, fá frítt í hlaupið en þurfa engu að síður að skrá sig.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki í báðum vegalengdum. Í 10 km hlaupinu fær sigurvegari 50.000 krónur, annað sætið 25.000 krónur og þriðja sætið 15.000 krónur. Í 5 km hlaupinu eru verðlaunin 25.000 krónur fyrir fyrsta sætið, 15.000 krónur fyrir annað sætið og 10.000 krónur fyrir þriðja sætið. Einnig verða veitt útdráttarverðlaun.
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaupið og geta þátttakendur nýtt sér sundlaugina án aukagjalds, enda er sund innifalið í þátttökugjaldinu.
Þeir sem koma utan af landi eru hvattir til að bóka ferð sína með Herjólfi tímanlega. Boðið verður upp á fría rútuferð frá bryggjunni upp í Íþróttamiðstöð fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni.
Allar upplýsingar um Vestmannaeyjahlaupið, ásamt upplýsingum um skráningu, má finna á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is. Einnig er hægt að fylgjast með hlaupinu á Facebook.
Hægt er að skrá sig með því að smella hér.