Í nýju myndbandi frá Halldóri B. Halldórssyni er sjónum beint að listaverki Ólafs Elíassonar, Sjónarhorni flakkarans, á nýja hrauninu í Vestmannaeyjum.
Verkið fellur með sérstökum hætti inn í stórbrotið umhverfið, þar sem hraunið, Eldfell og Heimaklettur mynda áhrifamikla umgjörð. Í myndbandinu er flogið yfir svæðið og listaverkið skoðað frá ólíkum sjónarhornum.
Sjónarhorn flakkarans samanstendur af útsýnisskála og spegilklæddri kúlu sem endurvarpar landslaginu og umhverfinu. Fyrsti áfangi verksins var formlega vígður í maí síðastliðnum. Myndbandið má sjá hér að neðan.