Alls hafa 82 skemmtiferðaskip komið til Vestmannaeyja það sem af er sumri með rúmlega 33 þúsund farþega. Aðeins vantar 146 farþega til að jafna metið frá árinu 2023. Þetta kemur fram í samantekt Vestmannaeyjabæjar.
Met var sett árið 2023 þegar 97 skemmtiferðaskip komu til Vestmannaeyja með samtals 33.214 farþega.
Von er á þremur skemmtiferðaskipum til viðbótar í september, dagana 19., 22. og 25. september. Að því loknu lýkur skemmtiferðaskipavertíðinni í Vestmannaeyjum árið 2026.
Auk skemmtiferðaskipanna hafa eftirtalin skip komið til Vestmannaeyjahafnar frá maí til ágúst:
Skipakomurnar voru því samtals 141 á tímabilinu. Þar eru komur fiskiskipa og Herjólfs ekki taldar með.
„Starfsmenn hafnarinnar og atvinnulífið allt á hrós skilið fyrir mikil afköst sumarið 2026,“ segir í samantekt Vestmannaeyjabæjar.