Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að systkinaafsláttur í leikskólum taki framvegis einnig til gjalds vegna skráningardaga. Markmiðið er að koma til móts við fjölskyldur með fleiri en eitt barn í leikskóla og stuðla að auknu jafnræði í gjaldtöku.
Starfshópur um gjaldskrá leikskóla fundaði 2. september og fór yfir reynsluna af breytingum sem tóku gildi um síðustu áramót. Rætt var um hvernig fyrirkomulagið hefur reynst, ábendingar foreldra og mögulegar úrbætur.
Samkvæmt gildandi gjaldskrá hefur eitt gjald verið innheimt fyrir skráningardaga, óháð fjölda systkina. Formaður fræðsluráðs lagði til að systkinaafsláttur næði einnig til þess gjalds og samþykkti ráðið tillöguna.
Starfshópurinn lagði jafnframt til að skólaskrifstofa sendi foreldrum barna í leik- og grunnskólum könnun um reynslu þeirra af fyrirkomulagi vetrarleyfis.
Þá verður komið upp „Spurt og svarað“-síðu á vef Vestmannaeyjabæjar um nýju gjaldskrána. Henni er ætlað að skýra fyrirkomulagið betur og draga úr þeim misskilningi sem gætti í upphafi innleiðingarinnar.
Einnig verður fulltrúum frá leikskólunum Sóla og Víkinni bætt við starfshópinn svo allir leikskólastjórar eigi þar fulltrúa.
Fræðsluráð tók jákvætt í tillögurnar og fól deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála að fylgja þeim eftir. Starfshópurinn mun funda aftur fljótlega og halda áfram að meta reynsluna af breytingunum og möguleika á frekari úrbótum.