Bæjarstjórn fundar – fylgst með fundinum í beinni
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Bæjarstjórn Vestmannaeyja kemur saman til fundar í dag, miðvikudaginn 9. september, klukkan 14. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér á Eyjafréttum.

Alls eru tíu mál á dagskrá. Þar á meðal eru samgöngumál, kaup Vestmannaeyjabæjar á almannavarnalögninni NSL-4 og fjármögnun kaupanna, auk kosninga í ráð, nefndir og stjórnir.

Þá verður fjallað um umhverfismat vegna fyrirhugaðs stórskipakants og grjótleitar, umhverfi og frágang við Sprönguna og breytingar á gjaldskrá og innheimtureglum leikskóla.

Dagskrá fundarins

  1. Umræða um samgöngumál 2026.
  2. Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun.
  3. Kosning í ráð, nefndir og stjórnir.
  4. Dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026–2027.
  5. Yfirferð bæjarstjóra yfir helstu mál.
  6. Fundargerð bæjarráðs nr. 3262.
  7. Fundargerð bæjarráðs nr. 3263.
  8. Fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs nr. 342.
  9. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs nr. 444.
  10. Fundargerð fræðsluráðs nr. 408.

Bein útsending frá fundinum hefst hér á Eyjafréttum klukkan 14.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar – fylgst með fundinum í beinni
Feta slóð Flakkarans um hraunið
H-verslun heldur annað hlaup í Eyjum
Önnur uppsögn starfsmanns Vestmannaeyjabæjar úrskurðuð ólögmæt
Framkvæmdir við innisundlaugina langt fram úr áætlun
Börnin eru ekki vandamálið
Magnús Dagur Jónatansson gengur til liðs við ÍBV
Kvennaliðið í góðri stöðu fyrir lokasprettinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.