
Dæluskipið Sebastiano Caboto liggur nú í Vestmannaeyjahöfn en það mun sinna viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn næstu árin. Samningur Vegagerðarinnar við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul tekur gildi 15. september. Halldór B. Halldórsson tók meðfylgjandi myndband af skipinu í Vestmannaeyjahöfn.
Eyjafréttir greindu frá komu skipsins til Vestmannaeyja í gær. Sebastiano Caboto mun sinna reglubundinni viðhaldsdýpkun hafnarinnar samkvæmt samningi Vegagerðarinnar við belgíska verktakafyrirtækið Jan De Nul.
Samningurinn nær til áranna 2026–2029 og felur í sér reglubundna dýpkun á hafnarsvæðinu og í nágrenni þess. Markmiðið er að tryggja nægjanlegt dýpi og öruggar siglingaaðstæður til og frá Landeyjahöfn.
Verkið var boðið út í lok desember 2025 og voru tilboð opnuð 10. febrúar síðastliðinn. Fjögur tilboð bárust og réðst niðurstaðan af samræmdu mati á verði og tæknilegum þáttum. Gert er ráð fyrir að dýpkun fari fram á þremur tímabilum ár hvert, frá september og fram í apríl. Áætlað árlegt dýpkunarmagn er á bilinu 250.000 til 500.000 rúmmetrar.
Jan De Nul þekkir aðstæður við Landeyjahöfn en fyrirtækið annaðist dýpkun hennar á árunum 2015–2018. Sebastiano Caboto var smíðað árið 2011 og er 93 metrar að lengd og 19,8 metrar á breidd.