Tvöfaldur handboltadagur í Íþróttamiðstöðinni
Stuðningsmenn ÍBV eru hvattir til að fjölmenna í Íþróttamiðstöðina, þar sem tveir handboltaleikir fara fram í dag. Kvennaliðið tekur á móti Selfossi klukkan 14:00 og ÍBV B mætir Herði klukkan 16:30. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Tveir handboltaleikir fara fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á laugardag. Kvennalið ÍBV tekur á móti Selfossi í Olísdeildinni klukkan 14:00 og að þeim leik loknum mæta ÍBV B og Hörður frá Ísafirði í Powerade-bikarnum.

Eyjakonur hafa tvö stig eftir fyrstu tvo leiki sína í deildinni. Þær hófu tímabilið með 32:28 sigri á KA/Þór en töpuðu 31:27 fyrir Val á útivelli í síðustu umferð.

Selfoss er einnig með tvö stig. Liðið vann Val 25:21 í fyrstu umferð en beið nauman 26:25 ósigur gegn Gróttu í síðasta leik.

B-liðið í bikarbaráttu

Klukkan 16:30 hefst síðan viðureign ÍBV B og Harðar frá Ísafirði í 32 liða úrslitum Powerade-bikars karla.

Miðasala á bikarleikinn fer fram við innganginn og kostar miðinn 2.000 krónur. Leikmenn ÍBV B treysta á góðan stuðning úr stúkunni og lofa hörkuskemmtun.

Handboltadagskráin í Íþróttamiðstöðinni í dag:

  • Klukkan 14:00: ÍBV–Selfoss, Olísdeild kvenna.
  • Klukkan 16:30: ÍBV B–Hörður, Powerade-bikar karla.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.