Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Blátindur VE21 á dráttarbraut við höfnina haustið 2025. Minjastofnun vill leita leiða til að bjarga bátnum frá förgun. Eyjafréttir/Óskar Pétur Friðriksson.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Minjastofnun vill láta reyna til þrautar hvort bjarga megi Blátindi VE21 með því að auglýsa bátinn að gjöf, með því skilyrði að hann verði gerður upp. Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að fjármunir sem áætlaðir hafa verið til förgunar fylgi bátnum, taki aðili við honum og flytji hann frá Vestmannaeyjum til uppgerðar.

Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins 30. september, eftir að hafnarstjóri og formaður ráðsins höfðu fundað með fulltrúum Minjastofnunar.

Í erindi stofnunarinnar, dagsettu 11. september og undirrituðu af Ugga Ævarssyni, minjaverði Suðurlands, kemur fram að forsvarsmenn ráðsins og hafnarstjóri hafi óskað eftir því í júlí að friðun Blátinds yrði aflétt svo hægt væri að rífa hann. Beiðnin hafi byggst á því að báturinn væri ónýtur og tæki pláss við höfnina sem væri af skornum skammti. Þá hafi komið fram í samskiptum við hafnarstjóra að ekki þætti forsvaranlegt fyrir sveitarfélagið að verja fjármunum til uppgerðar hans.

Telja bátinn hafa mikið minjagildi

Blátindur er eikarbátur, smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1947. Samkvæmt erindi Minjastofnunar er hann friðaður og hefur mikið minjagildi. Stofnunin lítur á hann sem vitnisburð um skipasmíðaiðnað í Vestmannaeyjum og á Íslandi og vill leita allra leiða til að koma í veg fyrir förgun hans.

Tillaga stofnunarinnar er að auglýsa bátinn að gjöf með skilyrði um uppgerð. Til að greiða fyrir því að einhver taki verkefnið að sér geti fjármunir sem annars færu í förgun fylgt bátnum sem meðgjöf. Minjastofnun leggur jafnframt áherslu á að ganga þurfi úr skugga um að viðtakandi hafi bolmagn til verksins og að hugur fylgi máli.

Sökk í höfninni árið 2020

Í erindinu er saga bátsins rakin í stuttu máli. Blátindur var notaður í Eyjum fyrstu tíu árin eða svo en gegndi síðar ýmsum hlutverkum við Íslandsstrendur. Um síðustu aldamót var hann dreginn aftur til Eyja og fékk andlitslyftingu fyrir tilstuðlan Áhugamannafélags um endurbyggingu vélbátsins Blátinds VE21.

Árið 2018 var bátnum komið fyrir við Skansinn til sýnis. Í ofsaveðri árið 2020 losnaði hann af sínum stað og sökk í höfninni. Hann var síðan hífður upp og komið fyrir á dráttarbraut eða skipalyftu við höfnina, þar sem hann hefur verið síðan.

Framkvæmda- og hafnarráð samþykkti að áætlað förgunarfé fylgi bátnum ef aðili tekur við honum og flytur hann frá Vestmannaeyjum til uppgerðar. Ráðið leggur áherslu á að niðurstaða liggi fyrir á næsta fundi þess. Fjárhæðin kemur ekki fram í fundargerðinni eða erindi Minjastofnunar.

Nýjustu fréttir

Vilja gefa Blátind með meðgjöf
Eyjakonur sækja HK heim í dag
Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum
Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.