Skráning er hafin fyrir hrekkjavökuna í Eyjum sem haldin verður 31. Október næstkomandi. Íbúar sem ætla að taka á móti börnum geta nú skráð heimili sín á rafrænt kort, svo fjölskyldur geti séð hvaða hús taka þátt.
Við skráningu þarf aðeins að gefa upp heimilisfang, en einnig er hægt að bæta við upplýsingum um staðsetningu inngangs og hvort húsið henti litlum börnum.
Hrekkjavakan hefur farið vaxandi í Vestmannaeyjum undanfarin ár og í fyrra tóku um 60 heimili þátt.
Skráningin birtist sjálfkrafa á kortinu, sem fjölskyldur geta nýtt til að skipuleggja leið sína um bæinn á hrekkjavökunni.