ÍBV vann sanngjarnan 3-1 sigur á FH
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta vann sanngjarnan 3-1 sigur á FH þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í dag. Hvorugt lið hafði að miklu að keppa fyrir leikinn. FH-ingar eru öruggir með sæti sitt í deildinni á næsta tímabili en ÍBV féll niður í Lengjudeildina í síðustu umferð.

Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir eftir 12 mínútur. Omar Sowe skoraði markið eftir laglegt samspil ÍBV. Tíu mínútum fyrir hálfleik fékk Omar gott tækifæri til að tvöfalda forystuna, en skot hans hafnaði í stönginni. Heiðmar Þór Magnússon náði frákastinu en skaut í þverslána.

Tveimur mínútum síðar fékk Bjarki Björn tvö gul spjöld með stuttu millibili og þar með rautt. Eyjamenn þurftu því að leika manni færri það sem eftir lifði leiks. Staðan var 1-0 í hálfleik.

Þrátt fyrir að vera einum færri héldu Eyjamenn áfram að sækja og Viggó Valgeirsson tvöfaldaði forystuna þegar rúmar 15 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Markið kom eftir sendingu frá Omar Sowe.

FH minnkaði muninn á 81. mínútu þegar Kjartan Kári Halldórsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Aðeins mínútu síðar skoraði Arnór Ingi Kristinsson þriðja mark ÍBV eftir sendingu frá Róberti Elís Hlynssyni og innsiglaði þar með 3-1 sigur Eyjamanna.

ÍBV er áfram á botni deildarinnar, með 22 stig en FH situr í 9. sæti með 30 stig.

ÍBV sækir KA heim í lokaumferð deildarinnar, laugardaginn 24. október kl. 14:00.

ÍBV 3 – 1 FH
1-0 Omar Sowe (’12)
2-0 Viggó Valgeirsson (’74)
2-1 Kjartan Kári Halldórsson (’80)
3-1 Arnór Ingi Kristinsson (’82)
Rautt spjald: Bjarki Björn Gunnarsson, ÍBV (’38)

Nýjustu fréttir

ÍBV vann sanngjarnan 3-1 sigur á FH
Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.