Kvennalið ÍBV í fótbolta mætti Grindavík/Njarðvík á útivelli í næstsíðustu umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með 2-1 sigri Grindavík/Njarðvík.
Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur og lítið um færi. Staðan var markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik.
Heimakonur náðu forystunni í upphafi síðari hálfleiks. Ása Björg Einarsdóttir átti þá góða fyrirgjöf inn á teig ÍBV og Tinna Hrönn Einarsdóttir kláraði færið af öryggi. Kristín Klara Óskarsdóttir var nálægt því að jafna metin fyrir ÍBV á 64. mínútu, en skot hennar hafnaði í þverslánni.
Grindavík/Njarðvík komst í 2-0 á lokamínútu venjulegs leiktíma með marki frá Elísu Birtu Káradóttur eftir klaufagang í vörn Eyjakvenna. Ágústa María Valtýsdóttir minnkaði muninn fyrir ÍBV mínútu síðar, en nær komust Eyjakonur ekki og 2-1 sigur heimakvenna varð niðurstaðan.
ÍBV er áfram í 3. sæti deildarinnar með 30 stig. Grindavík/Njarðvík komst upp í 4. sætið með sigrinum og er með 29 stig. Stjarnan getur þó komist upp fyrir Grindavík/Njarðvík á mánudaginn með sigri gegn Breiðabliki.
ÍBV tekur á Stjörnunni á Hásteinsvelli í lokaleik sínum í deildinni, föstudaginn 23. október kl. 16:00.
Grindavík/Njarðvík 2 – 1 ÍBV
1-0 Tinna Hrönn Einarsdóttir (’49)
2-0 Elísa Birta Káradóttir (’90)
2-1 Ágústa María Valtýsdóttir (’92)