Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Systurskipin Vestmannaey VE og Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE komu til löndunar í Neskaupstað snemma í morgun eftir stutta veiðiferð í leiðindabrælu. Bergey var með rúm 50 tonn og Vestmannaey með svipaðan afla, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Skipin lönduðu síðast sunnudag og var því ekki um langan túr að ræða. Aflinn var að langmestu leyti þorskur. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði í samtali við vef Síldarvinnslunnar að veðrið hefði sett svip sinn á ferðina.

„Það var bræludrulla allan tímann. Við byrjuðum á að keyra norður á Gletting og tókum þar eitt hol. Síðan var haldið á Litlagrunn og Vopnafjarðargrunn og þar var þokkalegt kropp. Við enduðum síðan á Glettinganesgrunni. Aflinn var langmest þorskur. Við komum inn í morgunroðanum og það verður haldið til veiða á ný í kvöld,“ sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði skipin hafa verið á svipuðum slóðum. Hundleiðinleg bræla hefði einkennt túrinn og aflinn verið nánast alfarið þorskur.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.