
Styrktartónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja eru jafnan stórviðburður í tónlistarlífi Eyjanna og tónleikarnir í Hvítasunnukirkjunni í gær voru þar engin undantekning. Hljóðfæraleikarar fylltu sviðið í gamla skemmtisalnum og frá fyrstu tónum var ljóst að hér átti að láta til sín taka. Krafturinn var mikill, samhljómurinn glæsilegur og lagavalið fjölbreytt. Byrjunin gat vart verið hressilegri. Sjálf klassíkin Birdland gaf tóninn fyrir það sem á eftir kom.
Segja má að Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi Lúðrasveitarinnar, sé í svipaðri stöðu og landsliðsþjálfari í handbolta eða fótbolta. Hann þarf að kalla saman sitt besta lið og leikmennirnir koma víða að. Traustur kjarni er hér heima en til liðs við hann bætast brottfluttir Eyjamenn og vinir sveitarinnar. Að þessu sinni voru hljóðfæraleikararnir 34, auk Jarls, og úr varð öflug og vel skipuð hljómsveit þar sem allir lögðust á eitt um að skila tónlistinni með sem glæsilegustum hætti.
Og árangurinn lét ekki á sér standa. Krafturinn, metnaðurinn, samhljómurinn og örugg stjórn Jarls voru með þeim hætti að hefði þetta verið íslenska landsliðið í fótbolta hefði frammistaðan hæglega skilað því í átta liða úrslit á heimsmeistaramóti. Ekki lítið afrek hjá liði sem kemur saman úr ýmsum áttum og hefur takmarkaðan tíma til að stilla saman strengi sína!
Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur í lagavalinu. Á eftir Birdland komu Glóðir eftir Oddgeir Kristjánsson og síðan syrpa með þjóðhátíðarlögum sem eiga alltaf greiða leið að hjörtum Eyjamanna. Þá hljómaði hinn sígildi mars The Stars and Stripes Forever, þar sem Lúðrasveitin fékk sannarlega tækifæri til að sýna mátt sinn og megin.
Og fjölbreytnin var langt frá því að vera á enda. Næst var haldið inn í heim tölvuleikjanna með tónlist úr Super Mario Bros. áður en komið var að syrpu með lögum úr smiðju snillingsins Stevie Wonder. Þá tók við tónlist bandarísku hljómsveitarinnar Blood, Sweat & Tears, sem gerði garðinn frægan með skemmtilegri blöndu af rokki, djassi og kraftmiklum blæstri. Eitt þekktasta lag sveitarinnar er Spinning Wheel, sem féll vel að þessari fjölbreyttu og fjörugu dagskrá.
Það er einmitt þessi fjölbreytni sem gerir tónleika Lúðrasveitar Vestmannaeyja svo skemmtilega. Hér mætast þjóðhátíðarperlur, marsar, djass, popp og rokk, allt flutt af metnaði og greinilegri ánægju þeirra sem á sviðinu standa. Hvergi var slegið af og sveitin sýndi að hún ræður vel við ólíkar tónlistarstefnur.
Þegar síðasti tónninn hljómaði var ljóst að tónleikagestir höfðu ekki fengið nóg. Vel var klappað og auðvitað lumaði sveitin á uppklappslagi. Það var vel við hæfi eftir þessa glæsilegu frammistöðu og undirtektirnar sýndu að gestir kunnu vel að meta það sem boðið var upp á.
Ekki spillti fyrir að tónleikarnir fóru fram í Hvítasunnukirkjunni, sem að mati undirritaðs er besti tónleikasalur Vestmannaeyja. Hljómburðurinn er frábær og salurinn hentar einstaklega vel fyrir tónleika af þessu tagi. Þar naut kraftmikill blásturinn sín til fulls án þess að fínni blæbrigði tónlistarinnar færu forgörðum.
Lúðrasveit Vestmannaeyja sýndi enn og aftur hversu mikill fjársjóður hún er í menningarlífi bæjarins. Það er ekkert sjálfgefið að kalla saman svo stóran hóp hljóðfæraleikara, víðs vegar að, og ná fram jafn glæsilegri heild. Þar skipta metnaður og hæfileikar félaganna miklu, ekki síður en örugg stjórn Jarls Sigurgeirssonar.
Þetta var sannkölluð tónlistarveisla. Lúðrasveitin lék á als oddi, gestir fóru ánægðir heim og landsliðsþjálfarinn Jarl mátti svo sannarlega vera stoltur af sínu liði. Ef þetta hefði verið heimsmeistaramót hefði enginn Eyjamaður kvartað yfir úrslitunum.

