
Í vikunni rifjuðum við upp 45 ára sögu Skipalyftunnar, sögðum frá áætlun um að stytta bið barna eftir greiningu og greindum frá því að Ellert Scheving Pálsson hefði sagt upp hjá ÍBV. Á föstudag var uppselt hjá Grýlu og á laugardag unnu Eyjakonur á Akureyri.
Skólaskrifstofan hefur lagt fram áætlun um að stytta bið barna eftir greiningu hjá skólasálfræðingi. Markmiðið er að hámarksbiðin verði 12–18 mánuðir. Til skoðunar er að bæta tímabundið við stöðugildi eða kaupa sérfræðiþjónustu. Fræðsluráð fól sviðsstjóra að fylgja málinu eftir við vinnu að fjárhagsáætlun næsta árs. Þar skiptir máli hvenær viðbótarþjónustan getur hafist og hvaða stuðning börn og fjölskyldur fá á meðan þau bíða. Fréttin um bið eftir greiningu.
Eigendur Vélsmiðjunnar Magna og Völundar stofnuðu Skipalyftuna 14. nóvember 1981. Í afmælisumfjölluninni á laugardag rifjuðum við upp upphaf fyrirtækisins og störf þess fyrir útgerðir og Eyjamenn í 45 ár. Afmælisumfjöllunin um Skipalyftuna.
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi Grýla gerir uppreisn eftir Ölmu Eðvaldsdóttur á föstudag og uppselt var á sýningar helgarinnar. Tvær sýningar eru á dagskrá 28. og 29. nóvember, báðar klukkan 15. Fréttin um Grýlu.
Ellert Scheving Pálsson staðfesti í svari við fyrirspurn Eyjafrétta að hann hefði sagt upp starfi framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélags. Uppsögnin tekur gildi um mánaðamótin og Ellert hyggst vinna út þriggja mánaða uppsagnarfrest sinn. Fréttin um uppsögn Ellerts.
Eyjakonur féllu úr leik í bikarnum gegn Stjörnunni á miðvikudag en unnu KA/Þór á Akureyri á laugardag í Olísdeildinni. Karlaliðið tapaði 35–21 fyrir Fram í Eyjum á fimmtudag. Sigurinn á Akureyri og leikur ÍBV og Fram.
Bókanir gera ráð fyrir 37 komum leiðangursskipa til Vestmannaeyja á næsta ári, samanborið við 46 í ár og 50 í fyrra. Framkvæmdastjóri Cruise Iceland segir óvissu um virðisaukaskatt og tollfrelsi hafa dregið úr áhuga útgerða á hringsiglingum um Ísland. Fréttin um leiðangursskipin.
Herjólfur sigldi til Þorlákshafnar á laugardag og einnig í dag. Ferðabreytingarnar komu í kjölfar óhagstæðrar veður- og sjólagsspár fyrir Landeyjahöfn. Fréttin um siglingar Herjólfs.
Við bíðum enn eftir svari um hvernig sorphirðu í Eyjum verður háttað eftir áramót. Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs 28. október var lögð áhersla á að koma í veg fyrir rof á þjónustunni. Málið var ekki bókað í fundargerð næsta fundar. Fundargerð 345. fundar, undir liðnum Sorpmál og fundargerð 346. fundar.
Þann 29. október óskuðu Eyjafréttir eftir nöfnum og starfsheitum umsækjenda um starf slökkviliðsstjóra. Bærinn sagði í svari sem við greindum frá 10. nóvember að hann biði eftir svörum frá umsækjendum. Í dag, 22. nóvember, eru 24 dagar liðnir frá því að beiðnin var send og listinn hefur enn ekki borist. Fyrri umfjöllun um gagnabeiðnina.
Á morgun birtum við fréttaskýringu um útboð heilsuræktarinnar. Í vikunni fylgjum við líka eftir fyrirspurnum um sorphirðuna og lista yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra.
Ef þú, lesandi góður, ert með ábendingu um mál sem þér finnst að Eyjafréttir ættu að fjalla um, viljum við gjarnan heyra frá þér. Þú getur sent okkur línu á frettir@eyjafrettir.is.
Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta.