Tveir í sóttkví í Eyjum, fáein sýni verið tekin
Starfsstöð Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Vestmannaeyjum.

Hjörtur Kristjánsson framkæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Suðurlands sendi frá sér í kvöld upplýsingar um stöðuna á Kórónaveirunni. Þar kemur fram að 23 einstaklingar eru í sóttkví á Suðurlandi. Einnig er eitthvað um að fólk færist til milli húsnæða sérstaklega milli eigins heimilis og og sumarbústaðs í sóttkví/einangrun og vegna slíkra flutninga eru t.d. núna engir með staðfest smit staðsettir á Suðurlandi.

Fáein sýni af Suðurlandi bíða vinnslu á morgun á veirufræðideild Landspítala líkt og verið hefur síðustu daga.

Tveir einstaklingar eru nú í sóttkví í Vestmannaeyjum auk aðstandanda á heimili. Engin „líkleg tilfelli“ hafa komið upp í Vestmannaeyjum, en tekin hafa verið fáein sýni í skimunarskyni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.