Tillögurnar ekki til bóta fyrir Vestmannaeyjar

Bæjarráð ræddi á fundi sínum í gær úthlutað aflamarki til sérstakra aðgerða í fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands. Er aflamarkið, sem er 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund, dregið af leyfilegum heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum, línuívilnunar, strandveiða, rækju- og skelbóta, frístundaveiðar og til annarra tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu. Á síðasta ári var úthlutað rúmlega 23 þús. þorskílgildistonnum af heildaraflanum til umræddra aðgerða.

Starfshópur á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skilaði af sér tillögum þann 21. febrúar sl. Í tengslum við vinnuna létu Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi vinna greiningu á málinu til að meta stöðu og áhrif þessara aflaheimilda á sveitarfélög og fyrirtæki á Suðurlandi. Meðal niðurstaðna er að útgerðir í Vestmannaeyjum leggja mun meira til þessa 5,3% kerfis en það sem þær nýta. Óverulegar heimildir eru nýttar í Vestmannaeyjum úr þessu kerfi á sama tíma og mestu aflamarki á Íslandi er úthlutað til útgerða í Vestmannaeyjum og því leggja útgerðirnar í Eyjum mest til kerfisins.
Vestmannaeyjabær var ekki talinn hagsmunaaðili og fékk því ekki beiðni um að senda umsögn og fékk ekki heldur kynningu á niðurstöðum og tillögum hópsins. Bæjarstjóri hefur óskað eftir því að fá að veita umsögn og fengið frest til þess til 23. mars nk.

Bæjarráð felur í niðurstöðu sinni bæjarstjóra að senda inn umsögn fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, enda miklir hagsmunir í húfi. Tillögurnar sem liggja fyrir eru ekki til bóta fyrir Vestmannaeyjar og hefur vinnulagið við ferlið ekki verið í anda þess sem lagt var upp með í byjun vinnunar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.