Hertar aðgerðir vegna COVID-19

Hertar aðgerðir vegna COVID-19
Reglur varðandi samkomubann í Vestmannaeyjum
Samkomubann í Vestmannaeyjum felur í sér að neðangreindar samkomur eru bannaðar:

  • Ráðstefnur, málþing, fundir o.þ.h.
  • Skemmtanir, s.s. tónleika, leiksýningar, bíósýningar, íþróttaviðburðir og einkasamkvæmi.
  • Kirkjuathafnir hvers konar, s.s. vegna útfara, giftinga, ferminga og annarra trúarsamkoma.
  • Aðra sambærilega viðburði með 10 einstaklingum eða fleiri. Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 10 einstaklingar inni í sama rými, s.s. á veitingastöðum, mötuneytum, kaffihúsum og verslunum.
  • Aðgangur almennings að íþróttamannvirkjum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum.
  • Starfsemi þar sem nálægð er mikil er bönnuð s.s. hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur slík starfsemi.
  • Sjúkraþjálfun nema þegar um mikilvæga endurhæfingar er að ræða og er slíkt þá heimilt með skilyrðum um öflugar sóttvarnaráðstafanir
  • Íþróttastarf barna og fullorðinna þar sem nálægð er minni en tveir metrar og einhver sameiginleg notkun á búnaði er fyrir hendi.

Aðgerðir þessar taka gildi frá laugardeginum 21.03.20 kl. 18.00

Í vissum tilvikum verður auk þess gripið til hertra skilyrða hvað sóttkví varðar í nánasta hópi þeirra sem eru með staðfest smit og verður það metið í hverju tilviki.

Ofangreindar aðgerðir eru gerðar í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni.

Frekari tilkynningar verða sendar út síðar í dag.

Aðgerðastjórn almannavarna

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.