Páley gestur á laugardagsfundi Sjálfstæðisfélagsins
Páley Borgþórsdóttir, aðgerðastjóri og lögreglustjóri Vestmannaeyja

Gestur á laugardagsfundi verður Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri. Hún situr í aðgerðarstjórn almannavarnarnefndar og hefur því í nógu verið að snúast hjá henni undanfarna daga.

Fundurinn mun fara fram á fésbókarsíðu Sjálfstæðisfélagsins og verður að venju á laugardegi kl.11:00. Gert er ráð fyrir að fundi sé lokið fyrir hádegi.
Páley mun verða með erindi í beinni útsendingu og geta gestir sett inn spurningar á meðan fundi stendur á kommentakerfi við útsendinguna. Einnig er hægt að setja fram spurningar fyrir fram í kommenti við auglýsinguna á fésbókarsíðunni. Mun Páley svara spurningum eins og aðstæður og tími leyfa.

Við mælum með því að hafa gott kaffi og enn betra meðlæti við höndina á fundinum. Þannig er haldið í hefðir sem við viljum endilega viðhalda.
Fundurinn er opinn og eru allir hjartanlega velkomnir að fylgjast með og taka þátt, hvar í flokki sem þeir kunna að standa. Endilega hvetjið sem flesta til þátttöku.

Hér er linkur á síðu sjálfstæðisfélagsins
https://www.facebook.com/xdeyjar

Kær kv.
Stjórnin

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.