Fjórtán hafa náð bata - tólf ný smit um helgina

Um helgina hafa 12 smitaðir bæst við og greindust allir nema einn í skimun Íslenskrar erfðagreiningar. Nú er búið að rannsaka 1200 af þeim 1500 sýnum sem voru tekin í skimun ÍE. Af þeim sem greindust nú voru 4 í sóttkví og nokkrir einkennalausir. Heildarfjöldi smita í Vestmannaeyjum er orðinn 95. Þá er ánægjulegt að segja frá því að 14 hafa náð bata. Í sóttkví eru nú skráðir 157.

Enn er brýnt fyrir Eyjamönnum að fara að öllum reglum enda er eina vörnin gegn smiti að takmarka samskipti og umgangast eins fáa og mögulegt er. Þá er þeim sem vantar aðstoð eða upplýsingar bent á að hringja í hjálparsíma Rauða krossins 1717.

 

Aðgerðastjórn

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.