Lífróður í ólgusjó verkfalla
Herjólfur á leið til Eyja.
Arnar Pétursson

Alvarleg staða ríkir í samgöngumálum okkar Eyjamanna. Herjólfur er okkar þjóðvegur og gegnir lykilhlutverki í samgöngum við Eyjar. Herjólfur er á sama tíma undirstaða ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum og stjórn Herjólfs gerir ráð fyrir ákveðnum fjölda ferðamanna í sínum rekstraráætlunum. Rétt eins og hótel, veitingastaðir, verslanir og önnur fyrirtæki sem hafa lifibrauð sitt af þjónustu við ferðamenn sem heimsækja Vestmannaeyjar rær Herjólfur ohf. lífróður. Forsendur rekstrarins eru brostnar, eigið fé félagsins uppurið og í vor var staðan orðin þannig að án aðkomu Vegagerðarinnar og stuðnings úr neyðarsjóði fjármálaráðuneytisins hefði aldrei verið hægt að halda úti áætlun með sex ferðum daglega í sumar.

En félagið lifir ekki af þessa fordæmalausu tíma án frekari stuðnings ríkisvaldsins. Taprekstur á þessu ári verður 350-400 m.kr. ef spár ganga eftir og nauðsynlegt að ríkisvaldið komi með frekari framlög umfram þær 650 m.kr. sem kveðið er á um í þjónustusamningi milli Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar.

Ólíkt mörgum öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum sem eiga í miklum fjárhagserfiðleikum og hafa flest neyðst til að segja upp starfsfólki, lækka laun eða breyta vinnuskipulagi hefur Herjólfur ohf. ekki gripið til slíkra aðgerða. Í ferðaþjónustunni, sem rær lífróður, er Herjólfur ohf. eina fyrirtæki sem stendur í verkfallsátökum við Sjómannafélag Íslands (SÍ)  sem krefst þess að vinnumánuður verði styttur um 25% án launaskerðingar, þ.e. í stað 20 daga verði 15 unnir fyrir sömu laun.

Heildarútgjöld Herjólfs ohf. á þessu ári eru áætluð 1.400 m.kr. Stærsti hluti útgjalda eru laun og launatengd gjöld, rúmar 700 m.kr. Krafa SÍ um 15 vinnudaga í stað 20 á sömu launum kostar félagið 175 m.kr. ef gert er ráð fyrir að sama gangi yfir alla starfsmenn um borð. Ef öllum kröfum SÍ yrði mætt yrði útgjaldaaukningin yfir 200 m.kr. Augljóst er að það gengur ekki. Forsendubrest á þjónustusamningi milli Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar, og bætur vegna hans,  má ræða við ríkisvaldið en bætur vegna launahækkana langt umfram það sem um hefur samist á almennum vinnumarkaði verða torsóttar.

Þjónustuskerðing með fækkun ferða og hækkun fargjalda eru afarkostir sem ekki er hægt að sætta sig við enda er þjóðvegurinn okkar nú þegar lokaður hluta úr sólarhring.

Öllum undirmönnum á Herjólfi hefur verið boðinn sambærilegur kjarasamningur og samþykktur hefur verið af sjómannafélaginu Jötni. Allir félagsmenn SÍ hafa fengið greitt samkvæmt þeim samningi og fengið launahækkanir samkvæmt honum. Sá kjarasamningur byggir á Lífskjarasamningnum sem skrifað var undir í apríl 2019. Hann er yfirskrift þeirra fjölmörgu samninga og aðgerða sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld sammæltust um fyrir komandi ár  og hefur þegar sannað gildi sitt með því að skapa skilyrði fyrir lægri vöxtum og stöðugu verðlagi . Lífskjarasamningurinn hefur verið samþykktur í langflestum stéttarfélögum, og í öllum félögum verkafólks, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Hann nær nú til 152 þúsund starfsmanna sem starfa samkvæmt 220 kjarasamningum, þar af 111 þúsund á almennum vinnumarkaði og 41 þúsund hjá ríki og sveitarfélögum.

Fimmtudaginn 9. júlí var samninganefnd SÍ boðinn þessi sami kjarasamningur og hún beðin um að kynna hann fyrir sínum félagsmönnum. Því boði var hafnað.

Ríkissáttasemjari, sem síðast var í sambandi við deiluaðila í gær (fimmtudaginn 16.07.2020), telur ekki ástæðu til að halda formlega fundi eins og er þar sem SÍ heldur fast í allar sínar kröfur. Þar er efst á blaði krafan um að vinnumánuður verði styttur um 25% án launaskerðingar.

Ég hvet félagsmenn SÍ sem starfa á Herjólfi að kynna sér kjarasamninginn sem þeim stendur til boða og er í samræmi við kjarasamning sem þorri launamanna á Íslandi hefur samþykkt.

Arnar Pétursson
Formaður stjórnar Herjólfs OHF

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.