Styrkir vegna áskorana sem hafa fylgt COVID-19 faraldri í félagsþjónustu og barnavernd

Byggðastofnun hefur auglýst styrki til sveitarfélaga vegna áskorana sem hafa fylgt COVID-19 faraldri í félagsþjónustu og barnavernd vorið 2020. Umsóknum skal skila eigi síðar en þriðjudaginn 1. september 2020 í gegnum umsóknagátt á vef Byggðastofnunar.

Í fjáraukalögum fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að veita 30 milljónum kr. til að takast á við áskoranir sem fylgja Covid-19 í félagsþjónustu og barnavernd í dreifðustu byggðum landsins. Við úthlutun styrkja verður eingöngu horft til umsókna frá sveitarfélögum utan þéttbýlasta hluta landsins. Þar af leiðandi eru undanskilin sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, auk Akraness, Skorradalshrepps, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar, Sveitarfélagsins Árborgar, Hveragerðis og Sveitarfélagsins Ölfuss.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.