Enn fjölgar í Eyjum

Íbúum í Vestmannaeyjum fjölgaði um 25 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. Þetta gerir 0,57% aukningu og er íbúafjöldi nú orðinn 4383. Fjölgun á landinu öllu nam 0,89%. Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi um 1,4% eða 433 íbúa.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.503 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 473 á sama tímabili.

Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna sex mánuði eða um 11,6% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 10 íbúa eða úr 86 í 96 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahreppi eða um 7,6%. Þá fækkaði íbúum í 21 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili.

Fækkun í tveimur landshlutum
Lítilsháttar fækkun varð í tveimur landshlutum, Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,8% en á Norðurlandi eystra um 0,1%.

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.