Sýslumaðurinn í Eyjum fær varanlegt verkefni

Í tilkynningu frá Dómsmálaráðuneytinu í gær kemur fram að könnun hjónavígsluskilyrða muni einungis fara fram hjá sýslumanni, frá og með 1 september næstkomandi.

Könnun hjónavígsluskilyrða, áður en hjónavígsla fer fram, verður nú ekki lengur á hendi presta eða forstöðumanna trú- og lífskoðunarfélaga og umboðsmanna þeirra og gildir einu hvort hjónaefni eiga lögheimili hér á landi eða ekki.

Vígsluheimildir presta og forstöðumanna trú- og lífsskoðunarfélaga og umboðsmanna þeirra verða óbreyttar, þannig að hjónaefni geta áfram valið hver framkvæmir hjónavígsluna, en þau þurfa að leita til sýslumanns fyrst til þess að kanna hvort hjónavígsluskilyrði séu uppfyllt.

Útgáfa könnunarvottorðs sýslumanns er forsenda þess að hjónavígsla megi fara fram.

Síðustu ár hefur þessu verkefni verið sinn, tímabundið, hjá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum fyrir sakir metnað og dugnaðs starfsfólk embættisins, en með þessu er verið að festa verkefnið í sessi. Enda hefur nú sérhæfing og reynsla skapast á þessum vettvangi hjá embættinu í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.