Að vera kristin manneskja, hvað þýðir það?
landakirkja_safnadarh.jpg
Aglowfundur verður í safnaðarheimili Landakirkju. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Aglowfundur verður í kvöld,  miðvikudagskvöldið  7. febrúar kl. 19.30  í safnaðarheimili Landakirkju.

Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir mun tala til viðstaddra og ætlar hún að fjalla um efnið  hvað  þýðir það  að vera kristin manneskja.

Í Postulasögunni 11.26  stendur ,,..Í Antíokkíu voru lærisveinarnir fyrst kallaðir kristnir.“ Sigrún Inga er trúföst Aglowkona og er í Aglow bænahópnum sem hittist vikulega.  Sjöviknafastan hefst með öskudegi. Margir nota föstutímann til fasta og  að íhuga Píslarsöguna . Fastan er tími sjálfsprófunar og til að dýpka og þroska trúarlíf og samfélag sitt við KRIST. Það gerist með kyrrð og bæn og með því að lifa látlausara lífi. Fastan er eitt elsta form andlegrar iðkunar og er mikilvæg til að neita sér um eitthvað til að geta gefið öðrum. Fastan er ekki aðeins til að halda í við sig heldur að beina athyglinni að Guði og náunganum. Gleðjist yfir Drottni og fagnið, þér réttlátir, kveðið fagnaðaróp, allir hjartahreinir ! Sálm. 32.11

Næstu  Aglow fundir verða;  6. mars, 3. apríl  (Páskafundur) og 1. maí. Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar í kvöld, segir í tilkynningu frá stjórn Aglow í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.