Framkvæmdir við sjávarútvegsfyrirtækið Löngu inni á Eiði eru á lokastigi en búið er að reisa 1100 fermetra viðbyggingu þar sem m.a. er að finna nýjan þurrkklefa, sem keyrður er með varmadælu og er klefinn sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Blaðamaður Eyjafrétta kíkti við í Löngu á þriðjudaginn, fékk að skoða nýja klefann undir leiðsögn �?órs Kristjánssonar frá Klöpp, sem sá um rafmagnshluta framkvæmdarinnar og þeirra Víkings Smárasonar, framleiðslustjóra Löngu og Elíasar Árna Jónssonar, fjármálastjóra.
Klefinn er mikið mannvirki, tuttugu metra langur og um sex metra breiður. �?ór lýsti stýrikerfi klefans og varmadælunni en varmadælan tekur um 460 kw, 960 kw á kælihlutann og 1,2 MW á hitanum. Með varmadælunni fylgir töluverður orkusparnaður miðað við gömlu þurrkklefana. Í nýja klefanum er notast við nýjustu tækni í hitastýringum og í raun hægt að fylgjast með og stýra klefanum í gegnum snjallsíma, ef því er að skipta. �?á er leitast við að nýta alla þá orku sem til fellur við framleiðsluna.
Færa lestun gáma
Er framkvæmdum við klefann lokið?
�??�?að má segja það. Framkvæmdirnar við húsið og klefann eru búnar að standa yfir síðan í janúar og var klefinn loks settur í gang síðastliðinn föstudag. Klefinn á að afkasta 20 til 25 tonnum á sólarhring og þannig auka afköstin um 50 til 60%. Klefinn svipar til lausfrystis, fyrir þá sem þekkja þannig búnað,�?? bætti hann við.
�?eir Víkingur og Elías segja að nýi klefinn sé mjög hagkvæmur í rekstri. �??Aðalhagkvæmnin felst í því að með 60% framleiðsluaukn- ingu þarf aðeins að bæta við tveimur starfsmönnum, en samtals eru starfsmenn Löngu um 20, einnig er klefinn keyrður á varmadælu, sem þýðir að ekki þarf heitt vatn til að hita hann eins og hina sem hefur í för með sér talsverðan orkusparnað enda væri varla hægt að hafa svona klefa hér í Eyjum nema með varmadælu. Til að segja það á einfaldan hátt þá erum við að nota jafn mikið heitt vatn í dag og 700 einbýlishús og mundum þurfa að tvöfalda það ef nýi klefinn væri líka keyrður á heitu vatni. �?etta er fyrsti færibandaklefinn sem er keyrður með varmadælu og þess vegna var mjög ánægjulegt að sjá klefann fara í gang og ganga eins og vel smurð vél. Við erum mjög ánægðir hvernig til hefur tekist og horfum spenntir fram á veginn,�?? sagði Víkingur.
Nánar í Eyjafréttum