Áfram hjá ÍBV
Ljósmynd: ÍBV

Þrátt fyrir mikil læti er á fullu verið að undirbúa næstu leiktíð hjá handboltadeild ÍBV. Hér eru fjórir leikmenn sem hafa endurnýjað samning sinn við ÍBV á síðustu dögum.

Amelía Dís og handknattleiksdeild ÍBV hafa gert með sér samning sem nær til næstu tveggja tímabila. Amelía Dís er ungur og efnilegur vinstri hornamaður sem hefur leikið undanfarið með 3. flokki félagsins og U-liði ásamt því að vera hluti af meistaraflokkshópi ÍBV. Jafnframt hefur Amelía Dís leikið með yngri landsliðunum.

Harpa Valey Gylfadóttir og handknattleiksdeild ÍBV hafa gert með sér nýjan samning sem nær til næstu tveggja tímabila.
Harpa hefur verið einn af lykilmönnum ÍBV síðustu ár og hefur með góðri frammistöðu sinni fest sig í sessi í A-landsliði Íslands. Hún var markahæsti leikmaður liðsins í Olís-deild kvenna á nýloknu tímabili og skoraði 107 mörk í 21 leik.

Bríet Ómarsdóttir og handknattleiksdeild ÍBV hafa gert með sér nýjan samning fyrir næsta keppnistímabil.
Bríet er öflugur línumaður sem uppalinn er hjá félaginu og hefur leikið með meistaraflokki ÍBV undanfarin ár, ásamt U-liði félagsins. Hún hefur leikið með yngri landsliðum Íslands í gegnum tíðina og var valin efnilegasti leikmaður ÍBV árið 2020.

Ingibjørg Olsen og handknattleiksdeild ÍBV hafa gert með sér nýjan samning sem nær til næstu tveggja tímabila.
ngibjørg kom til ÍBV frá færeyska liðinu Vestmanna fyrir nýafstaðið tímabil. Hún var lykilmaður í U-liði okkar í vetur ásamt því að vera hluti af meistaraflokksliðinu.

Nýjustu fréttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.