Álagið með því mesta sem við höfum séð

Næstu daga stefn­ir í eitt mesta kuldakast víðs vegar um landið síðan árið 2013. Út­lit fyr­ir að hita­veit­an á höfuðborg­ar­svæðinu fari að þol­mörk­um á föstu­dag og fram yfir helgi. Um 90% af hita­veitu­vatni er notað til hús­hit­un­ar og því skipt­ir afar miklu máli að fólk sé meðvitað um hvernig nýta á það sem best, seg­ir í til­kynn­ingu frá Veit­um.

Mikilvægt að koma í veg fyrir orkusóun
Ívar Atlason hjá HS veitum í Vestmannaeyjum segir álagið á kerfinu mikið. “Við erum í ágætis málum varðandi hitaveituna. Það er mikið álag á hitaveituna þessa stundina, með því mesta sem við höfum séð. Okkur gengur ágætlega að halda uppi þrýstingi á öllum stöðum í bænum.”
Ívar segir að ekki hafi komið til þess að grípa þurfi til  takmarkana. “Að sjálfsögðu viljum við benda fólki á að koma í veg fyrir orkusóun. Hafa alla glugga lokaða osfrv. Einnig þurfa húseigendur að hafa í huga að ef ofnakerfið/gólfhitakerfið er í lagi og rétt stillt, þá er hlýtt í húsum, ekki orkusóun og orkukostnaður í lágmarki.”

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.