Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Plokkað á Heimaey. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land á morgun., sunnudaginn 26. apríl og verður efnt til sameiginlegs hreinsunardags á Heimaey af því tilefni.

Safnast verður saman klukkan 11:00 í garðinum við suðurhlið Ráðhússins þar sem pokar og plokktangir verða í boði á meðan birgðir endast. Klukkan 13:00 býður Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar til grillveislu á sama stað.

Dagurinn er ætlaður öllum aldurshópum og eru íbúar hvattir til að leggja sitt af mörkum til að gera Heimaey snyrtilegri fyrir sumarið. Undanfarin ár hafa hópar og félög tekið að sér ákveðin svæði til að hreinsa, sjá meðfylgjandi mynd. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Nýjustu fréttir

Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.