Allt er fertugum fært
Á laugardaginn 28. júní verða liðin 40 ár frá því fyrsta tölublað Frétta leit dagsins ljós.
�?að var árið 1974 að prentsmiðjan Eyjaprent ákvað að hefja útgáfu á vikulegu fréttablaði í Eyjum sem fékk nafnið Fréttir. Fyrir á blaðamarkaði í Eyjum var blaðið Dagskrá og pólitísku blöðin Brautin, Fylkir, Framsóknarblaðið og Eyjablaðið. Fyrsta blað Frétta var fjórar blaðsíður að stærð og forsíðuefni þess var grein um pólitíkina í Eyjum rituð undir dulefninu Landkrabbi.
Áfram var haldið, útgáfa vikulega og á ýmsu gekk, stundum gekk vel, í annan tíma illa. �?rautsegja og þolgæði ásamt metnaði til að gefa út gott blað hefur alla tíð verið veganestið. Blaðið hefur í áranna rás tekið gífurlegum breytingum, bæði hafa efnistök breyst og ekki síður tæknin. Í fyrstu var blaðið prentað á lítinn fjölritara og textinn vélritaður. Tölvutæknin tók smám saman yfir alla textagerð og umbrot blaðsins eftir því sem henni fleygði fram og prentun fer nú fram í offsetprentvél. �?á hefur blaðið með aldrinum stækkað og orðið fjölbreyttara eins og títt er um fertuga.
Á 40 ára afmæli er tilefni til að fagna. Undanfarna mánuði hefur verið unnið við að skanna allar Fréttir frá upphafi og koma þeim á veraldarvefinn. Verður aðgangur að blaðinu opnaður við hátíðlega athöfn í Einarsstofu í Safnahúsinu á afmælisdaginn sjálfan, laugardaginn 28. júní kl. 13.30 og er öllum boðið sem þiggja vilja. �?ar verður einnig stutt hátíðardagskrá í tilefni afmælisins og opnuð sýning á ljósmyndum úr safni blaðsins. Hluti ljósmyndasýningarinnar verður undir heitinu �??Vorið 2014�??. Vorið var stórt fréttavor og margir atburðir þess áhugaverðir og myndríkir, sem fá að njóta sín á veggjum Einarsstofu í tilefni afmælisins; Íslandsmeistaratitill, Sumarstúlkukeppin, kosningar, Eldheimar, skólaslit o.fl.
Á morgun, fimmtudag kemur út stórt afmælisblað Eyjafrétta, þar sem fjallað verður um sögu blaðsins, m.a. viðtöl, ásamt minningabrotum ýmissa eldri og núverandi starfsmanna og tekinn púlsinn þeim kynslóðum sem fylgt hafa Fréttum í 40 ár, auk margs annars efnis.
Á myndinni eru frumkvöðlarnir; þau stofnuðu Eyjaprent sem gaf út blaðið Fréttir: Arnar Sigurmundsson, María Vilhjálmsdóttir, Ásta Arnmundsdóttir, Sigurður Jónsson, Birna �?lafsdóttir og Guðlaugur Sigurðsson. Á myndina vantar Andra Hrólfsson, sem einnig var meðal stofnenda fyrirtækisins.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.