Áminning og uppsögn ólögmæt
�??Í dag barst mér bréf frá Innanríkisráðuneytinu sem var svar við kæru minni um áminningarferilinn og uppsögnina sem ég fékk frá Akureyrarbæ. �?að tók eina 20 mánuði að úrskurða í málinu,�?? sagði Snorri �?skarsson, oft kenndur við Betel í Vestmanna-eyjum, um úrskurðinn en bæði áminning og uppsögn voru dæmd ólögmæt.
Snorra, sem er þekktur predikari hvítasunnumanna, var í júlí 2012 vikið úr starfi kennara við Brekkuskóla á Akureyri vegna ummæla hans um samkynhneigð. Rætt var við Snorra í morgun og var hann að vonum ánægður. �??�?ar sem ég braut ekkert af mér í starfi var skólanum og fræðslustjóra óheimilt að veita mér áminningu og fara með mál mitt í áminningarferli. Uppsögnin var dæmd ólögleg vegna þess að ekkert tilefni var í kennslu minni sem gaf þeim rétt samkvæmt kjarasamningi að segja mér upp,�?? sagði Snorri.
Hann sagðist hafa rétt til trúar og tjáningar samkvæmt 73. grein stjórnarskrárinnar. �??Ítrekuð dómafordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu um undanþágur og takmark-anir á meginreglunni ber að túlka afar þröngt. Akureyrarbær hafði því engan rétt til að setja tjáningarfrelsi mínu skorður né hefta trúarskoðanir mínar enda engin meiðandi um-mæli höfð í frammi gagnvart einstaklingum, samkynhneigðum, trans-fólki eða öðrum,�?? sagði Snorri og bað fyrir kærar kveðjur úr norðrinu.
Nánar í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.