Andri Heimir Friðriksson, leikmaður karlaliðs ÍBV í handbolta er handleggsbrotinn og kominn í gifs. Andri Heimir meiddist snemma í síðari hálfleik en kláraði leikinn og átti í raun og veru stórleik með ÍBV. �??Já ég er kominn í gifs og verð með það næstu tvær vikurnar,�?? sagði Andri Heimir í samtali við Eyjafréttir í morgun. Hann bætist á meiðslalistann sem er óþægilega langur fyrir Eyjamenn en óvíst er hvort Magnús Stefánsson spili meira í vetur og þá meiddist hinn ungi og bráðefnilegi Dagur Arnarsson í vikunni. Allir leika þeir fyrir utan og er úrvalið því frekar þunnskipað fyrir leikinn gegn Haukum á mánudaginn.
Andri segist þó vongóður um að geta spilað í úrslitakeppninni. �??�?g fer í skoðun eftir 10 daga og er ekkert búinn að útiloka það að spila með ÍBV í úrslitunum,�?? sagði Andri en úrslitakeppnin hefst einmitt eftir 11 daga. Skyttan sterka er því í kapphlaupi við tímann.
En hvernig var að spila handleggsbrotinn?
�??�?að var ekki gott. �?g vissi að eitthvað hefði brotnað og fyrst var ég mjög kvalinn. En svo dofnaði þetta og ég fór bara að drippla og kasta með vinstri. Við héldum að bátsbeinið hefði brotnað en þetta er eitthvað annað bein, neðst í úlnliðnum sem flísaðist upp úr. �?g stefni hins vegar á að spila í úrslitunum og vonandi tekst það,�?? sagði Andri.