Annar fyrrum landsliðsmaður í KFS
Hjalti Kristjánsson sópar að sér fyrrum landsliðsmönnum þessa dagana en í síðustu viku skrifaði Tryggvi Guðmundsson undir samning hjá félaginu. Annar fyrrum landsliðsmaður, Sverrir Garðarsson hefur nú ákveðið að spila með KFS í 4. deildinni en saman léku þeir Sverrir og Tryggvi með FH á sínum tíma. Sverrir á að baki einn landsleik með A-landsliði Íslands en fjölmarga leiki með yngri landsliðunum. Hann lék með sænska félaginu GIF Sundsvall í Svíþjóð, lék með Fylki síðasta sumar en hefur ekkert spilað í vetur.
KFS lagði Gróttu að velli í bikarnum um síðustu helgi og mætir 1. deildarliði �?róttar R. á gervigrasinu í Laugardal á þriðjudaginn. Sverrir gæti hugsanlega leikið þar sinn fyrsta leik fyrir KFS.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.