Arnar Pétursson tekur við ÍBV
Handknattleiksdeild ÍBV hefur náð samkomulagi við Arnar Pétursson um að Arnar verði þjálfari mfl. karla á næsta keppnistímabili.
Arnar þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum ÍBV. Hann lék með ÍBV upp alla yngri flokka og var í liði ÍBV sem vann 2. deild karla 1995. Arnar lék einnig með Stjörnunni, FH og Haukum og varð tvívegis Íslandsmeistari með Haukum áður hann snéri aftur heim árið 2009 og tók við þjálfun ÍBV sem þá lék í 1. deild. Undir stjórn Arnars og Erlings Richardssonar vann ÍBV 1. deildina 2013 og ásamt Gunnari Magnússyni gerði Arnar ÍBV að Íslandsmeisturum 2014. Á núliðnu keppnistímabili tók Arnar sér hlé frá þjálfun en snýr nú aftur af fullum krafti.
Handknattleiksdeild ÍBV lýsir yfir mikilli ánægju með ráðningu þessa og er hún liður í því verðuga verkefni að festa ÍBV enn frekar í sessi sem eitt af betri liðum á Íslandi.
F.h. hönd handknattleiksdeildar ÍBV
Karl Haraldsson, formaður.

Nýjustu fréttir

Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.