Árni Friðriksson í makríl-rannsóknum
Árni Friðriksson HF 200. Ljósmynd/hafogvatn.is/

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar Árni Friðriksson fór úr Hafnarfjarðarhöfn þann 1. júlí til þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarleiðangri. Í tilkynningu Hafrannsóknastofnun segir að eitt af meginmarkmiðum hans sé að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.

Í leiðangrinum verður einnig aflað gagna sem nýtast við vöktun og fjölbreyttar rannsóknir á ýmsum þáttum vistkerfisins þ.m.t. frumframleiðni, ástandi sjávar, mælingar á átumagni og rannsóknir á miðsjávarfiskum og -hryggleysingjum. Í ár verður einnig umfangsmikil hvalatalning í leiðangrinum sem er hluti af svokallaðri NASS talningu (North Atlantic Sighting Survey) og hófst í karfaleiðangri á Árna Friðrikssýni í júní síðastliðnum.

Fimmtán ár af rannsóknum á makríl

Þetta er fimmtánda árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í þessum leiðangri ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Yfirferðasvæði Árna er fyrir norðan, austan, sunnan og vestan landið ásamt svæði í grænlenskri landhelgi fyrir norðan Ísland (Mynd 1). Líkt og áður er hægt að fylgjast með staðsetningu og feril Árna á slóðinni: https://skip.hafro.is/.

Leiðangurinn á Árna stendur í 34 dag og verða sigldar tæplega 5500 sjómílur eða um 9400 km og 55 yfirborðstogstöðvar verða teknar á fyrirfram ákveðnum stöðum. Um borð eru 15 vísindamenn og 17 manna áhöfn.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.