Arnór Gauti afgreiddi ÍBV með þrennu á þrettán mínútum

Arnór Gauti Ragnarsson sá um að afgreiða sína fyrrum félaga í ÍBV í leik í A-deild Fótbolta.net mótsins í gær en Arnór Gauti lék með ÍBV eitt tímabil, 2017.

Viktor Karl Einarsson kom blikum yfir á 21. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Þegar sautján mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Arnór Gauti sitt fyrsta mark. Þrettán mínútum síðar hafði hann bætt við tveimur til viðbótar. Þrenna á þrettán mínútum.

Lokatölur Breiðablik 4 – ÍBV 0. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en hann var sýndur í beinni útsendingu á Youtube rás blika.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.