Auðvitað á að flytja opinber störf á landsbyggðirnar
Á Íslandi eru 17.516 stöðugildi opinberra starfsmanna (tölur frá 2011). �?eim hefur fjölgað um 227 síðan 2007. Mest hefur fjölgunin orðið erlendis (og óstaðsett) um 157 stöðugildi. �?á hefur þeim einnig fjölgað á höfuðborgarsvæðinu og eins og fram kom í tíufréttum R�?V í gær þá er talið nánast öruggt að þar fjölgi þeim áfram. �?ví hefur verið haldið fram �??réttilega að mínu mati- að eitt af vopnum hins opinbera við byggðaþróun sé val á staðsetningu opinberra starfa. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar (td. �?óroddur Bjarnason framkvæmdastjóri Byggðastofnunar) hafa haldið því fram að án efa sé stærsti byggðastyrkur allra tíma sá að hafa valið að staðsetja nánast allar stofnanir sem fjármagnaðar eru með sameiginlegum sjóðum á höfuðborgarsvæðinu. �?ar eru nú 12.330 stöðugildi á vegum ríkisins eða rúmlega 70% allra opinberra starfa.
Áfallahjálp
Á seinustu dögum hefur skapast mikil umræða um þá ákvörðun að flytja Fiskistofu af höfuðborgarsvæðinu til Akureyrar. Í ársbyrjun voru um 75 starfsmenn hjá Fiskistofu á 5 starfsstöðvum en athygli vekur að starfsmannavelta er óvenju há eða um 16%. Við flutninginn norður færast um 30 störf frá Hafnafirði norður yfir heiðar. Starfsmönnum hefur verið boðin áfallahjálp.
Misskipting
Á Akureyri eru nú um 1024 stöðugildi ríkisstarfsmanna. Eftir þessa breytingu verða þeir 1054. Á Akureyri búa 18.103 íbúar og fjöldi íbúa á bak við hvert opinbert stöðugildi er því 18. Opinberum störfum er mjög misskipt á landið. �?annig eru til dæmis 23 íbúar á bak við hvert starf í Fjarðabyggð, 24 í Vesturbyggð, 17 í Norðurþingi, 15 á Ísafirði og 13 í Árborg. Í Vestmannaeyjum eru 4280 íbúar og hér eru 135 stöðugildi hjá ríkinu. �?að merkir að á bak við hvert slíkt stöðugildi í Vestmanneyjum eru 31 íbúi. Á sama tíma liggur fyrir að engir íbúar þessa lands greiða meira til hins opinbera en Eyjamenn. �?g veit ekki til þess að þingmönnum Suðurlands hafi verið boðin áfallahjálp í ljósi þessara staðreynda.
Efndir
�?að er bæði sjálfsagt og eðlilegt að núverandi ríkisstjórn standi við þau fyrirheit að flytja störf á landsbyggðina. Í stjórnarsáttmálanum segir enda: �??Mikilvægt er að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa…�?? �?g fagna því sérstaklega að fyrsta skrefið skuli nú hafa verið tekið hvað efndir varðar og að fyrirhugað sé að flytja Fiskistofu norður á Akureyri. Vissulega skiptir sköpum að allra leiða verði leitað til að gera þetta sem sársaukaminnst fyrir starfsmenn Fiskistofu. �?að er verðugt og mikilvægt úrlausnarverkefni en ekki óyfirstíganleg hindrun. Svo verð ég nú að viðurkenna að mér þykir það �??pínu�?? fyndið að sumir sem ganga hart fram í gagnrýni á efndum þessa loforðs eru nýbúnir að standa á Austurvelli margar helgar í röð og krefjast efnda á kosningaloforðum.
Nú er komið að Vestmannaeyjum
Næst er svo komið að Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjar eru næst stærsti byggðakjarni á landsbyggðinni utan höfuðborgarsvæðisins (sjá skilgreiningu sóknaráætlunar), eingöngu Akureyri er stærri. �?víða eru jafn góð tækifæri til sóknar. Hingað væri til að mynda hægt að flytja Hafrannsóknarstofnun, Lögregluskólann, Einkaleyfastofu og �?jóðskrá. Svo mikið er víst að tími landsbyggðanna er að renna upp. Langlundargeð íbúa þar er löngu þrotið. �?ar er ekki lengur vilji til að vera nýlendur sem framleiða verðmæti sem nýtast til velferðar annarsstaðar.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.